Fyrsta A321neo Airbus flugvélin var afhent Primera Air í Hamborg í Þýskalandi í vikubyrjun og hóf samstundis áætlunarflug með flugi til Kaupmannahafnar og Billund í Danmörku. Því næst fer flugvélin til Bretlands þaðan sem hún mun hefja flug til New York og Boston í Bandaríkjunum og Toronto í Kanada.
Þessi fyrsta af þremur A321neo flugvélum sem Primera Air fær á þessu ári er leigð af GECAS og fimm aðrar flugvélar verða leigðar af öðrum aðilum, þar af tvær A321LR. Primera Air verður fyrsta flugfélagið til að taka þær vélar í notkun, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Primera, en þær eru enn langdrægari útgáfa af Airbus A321neo.
Nýja Airbus A321neo flugvélin er knúin af CFM Leap-1A vélum sem hafa flugdrægni upp á 4.000 nm og verður boðið upp á 16 Premium flugsæti og 182 Economy flugsæti. Airbus A321LR, sem Primera Air fær afhentar síðar á árinu, fór nýlega í í jómfrúarflug sitt og tilkynnti Airbus að flugdrægni þeirrar tegundar væri 4.750 nm.