Stýrivextir áfram óbreyttir

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Ófeigur

Stýrivextir Seðlabankans verða áfram óbreyttir og halda sér því í 4,25%. Þetta kemur fram í yfirlýsingu peningastefnunefndar bankans sem birt var nú í morgun. Segir í tilkynningunni að áfram séu horfur á að dragi úr hagvexti á árinu með hægari vexti útflutnings og innlendrar eftirspurnar. Þá bendi þróun íbúðaverðs og vísbendingar af vinnumarkaði í sömu átt.

Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum þjóðhagsreikninga sem Hagstofa Íslands birti nýlega var hagvöxtur á fyrsta fjórðungi ársins 6,6% sem er töluvert meiri vöxtur en mældist á seinni hluta síðasta árs. Þetta er aðeins meiri vöxtur en Seðlabankinn gerði ráð fyrir í maí en í meginatriðum er þróunin í samræmi við spá bankans, segir í yfirlýsingunni.

Verðbólga hjaðnaði í 2% í maí en undanfarna mánuði hefur bæði mæld og undirliggjandi verðbólga verið í grennd við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans. Áfram dregur úr árshækkun húsnæðisverðs en gagnstæð áhrif gengisbreytinga krónunnar á verðbólguna hafa dvínað. Líklegt er að þessi þróun haldi áfram á næstunni að sögn bankans.

Gengi krónunnar hefur lækkað aðeins frá síðasta fundi peningastefnunefndar en gjaldeyrismarkaðurinn hefur áfram verið í ágætu jafnvægi. Verðbólguvæntingar virðast á heildina litið í ágætu samræmi við verðbólgumarkmið segir í yfirlýsingu nefndarinnar.

Horfur fram undan eru á minnkandi spennu í þjóðarbúskapnum, en áfram þörf fyrir peningalegt aðhald í ljósi mikils vaxtar innlendrar eftirspurnar og undirliggjandi spennu á vinnumarkaði.

Vextir verða því sem hér segir:

  1. Daglán: 6,00% 
  2. Lán gegn veði í verðbréfum: 5,00% 
  3. Innlán bundin í 7 daga: 4,25% 
  4. Viðskiptareikningar: 4,00% 
  5. Bindiskyldar innstæður: 4,00%
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK