Eva Halldórsdóttir lögmaður hefur bæst í hóp eigenda Lögmanna Lækjargötu ehf. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.
Eva er með LL.M-próf með áherslu á félagarétt og stjórnarhætti frá lagadeild Stanford-háskóla í Bandaríkjunum. Hún lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2004, hlaut málflutningsréttindi árið 2005 og lauk prófi í verðbréfamiðlun árið 2007. Eva hefur starfað hjá Lögmönnum Lækjargötu frá árinu 2014 sem lögmaður og sem verkefnastjóri stofunnar.
Samhliða lögmannsstörfum hefur Eva setið í stjórnum ýmissa félaga, hún á sæti í áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema, situr í stjórn knattspyrnudeildar Vals og er ritstjóri Lögmannablaðsins.
Fyrir í hópi eigenda Lögmanna Lækjargötu eru lögmennirnir Andri Vilhjálmur Sigurðsson, Birgir Tjörvi Pétursson, Guðmundur H. Pétursson, Reimar Pétursson og Sigurður Kári Kristjánsson.