Félagið Skeljungur hf. kemur nýtt inn í OMX Iceland 8-vísitölu kauphallarinnar í staðinn fyrir Regin fasteignafélag hf.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá kauphöllinni þar sem niðurstöður endurskoðunar á OMX Iceland 8-vísitölunni, sem gerð er tvisvar á ári, eru kynntar.
Samsetning OMXI8-vísitölunnar frá og með 2. júlí 2018 verður því eftirfarandi:
Eik fasteignafélag hf. (EIK)
Hagar hf. (HAGA)
Icelandair Group hf. (ICEAIR)
Marel hf. (MARL)
N1 hf. (N1)
Reitir fasteignafélag hf. (REITIR)
Síminn hf. (SIMINN)
Skeljungur hf. (SKEL)
„OMX Iceland 8 vísitalan er Úrvalsvísitala Nasdaq Iceland og er samsett af þeim átta félögum sem hafa mestan seljanleika á Nasdaq Iceland. Vægi félaga í OMX Iceland 8 vísitölunni ræðst af flotleiðréttu markaðsvirði, sem þýðir að einungis það hlutafé sem ætla má að myndi grunn að virkum viðskiptum er hluti af vísitölunni,“ segir í tilkynningunni.