Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor’s hefur staðfest langtímalánshæfismat Arion banka, BBB+ með stöðugum horfum. Skammtímalánshæfismat bankans er áfram A-2.
Í tilkynningu frá Standard & Poor´s kemur fram að íslenska fjármálakerfið sé stöðugt og að hagkerfið haldi áfram að vaxa en um leið dragi úr merkjum um ofhitnun í hagkerfinu.
Að þeirra mati raskar þátttaka lífeyrissjóða á íbúðalánamarkaði samkeppnisumhverfi íslenskra fjármálafyrirtækja.