Tekjuafkoman jákvæð

Áætluð tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um 1,5 milljarða króna á öðrum árs­fjórð­ungi eða sem nemur 0,2% af landsframleiðslu ársfjórðungsins. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofu Íslands á fjármálum hins opinbera.

Á sama tíma árið 2017 var afkoman neikvæð um 28,4 milljarða króna. Þessi neikvæða afkoma á 2. ársfjórðungi 2017, skýrist öðru fremur af 35,0 milljarða króna fjármagnstilfærslu sveitarfélaga til Brúar lífeyrissjóðs, sem tilkomin er vegna breytinga á A deild sjóðsins. Heildartekjur hins opinbera jukust um 2,5% milli 2. ársfjórðungs 2017 og 2018 á sama tíma og heildarútgjöld drógust saman um 7,6%.

Vegna tafa á útgáfu Ríkisreiknings fyrir árið 2017, eru tölur fyrir 2017 enn bráðabirgðatölur, segir í frétt á vef Hagstofunnar. Útgáfu Fjármál hins opinbera 2017 – endurskoðun, sem fyrirhuguð var samhliða ársfjórðungsútgáfunni í dag, hefur verið frestað til 13. desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK