Skráð atvinnuleysi í nóvember var 2,5% og jókst um 0,1 prósentustig frá októbermánuði.
Að meðaltali fjölgaði um 885 á atvinnuleysisskrá í nóvember í ár frá nóvember í fyrra (2017), en þá mældist skráð atvinnuleysi 2,1%, að því er fram kemur á vef Vinnumálastofnunar.