Heildareignir Gildis námu undir lok síðasta árs 561,2 milljörðum króna og hækkuðu þær um tæplega 44 milljarða milli ára. Þetta kom fram á ársfundi lífeyrissjóðsins sem var haldinn á Grand hóteli síðastliðinn fimmtudag.
Hrein nafnávöxtun samtryggingardeildar sjóðsins nam 5,8% og hrein raunávöxtun 2,4%.
Sjóðurinn greiddi rúma 16 milljarða króna í lífeyri á árinu 2017, þar af 10,3 milljarða í ellilífeyri og 4,8 milljarða í örorkulífeyri, að því er segir í tilkynningu.
Á fundinum lagði stjórn fram nokkrar tillögur að breytingum á samþykktum sjóðsins og voru þær allar samþykktar. Breytingarnar voru gerðar til að uppfylla ákvæði samkomulags Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um lífeyrismál sem skrifað var undir 24. apríl í fyrra.
Á fundinum var staðfest ný starfskjarastefna sem nær til stjórnarmanna og allra starfsmanna. Markmiðið með stefnunni er að styðja við góða stjórnarhætti í rekstri sjóðsins og auka gegnsæi.