Fækkað um einn í framkvæmdastjórn VÍS

Framkvæmdastjórum hjá VÍS hefur verið fækkað um einn samhliða því að Ólafur Lúther Einarsson, framkvæmdastjóri kjarnastarfsemi, hefur látið af störfum. Gerðar voru breytingar á skipuriti félagsins og hefur svið fjárfestinga og rekstrar verið lagt niður. Fjárfestingar færast á skrifstofu forstjóra, en fjármálastjórn verður undir kjarnastarfseminni og nú undir stjórn Valgeirs M. Baldurssonar.

Í framkvæmdastjórn eru auk Helga Bjarnasonar forstjóra, Anna Rós Ívarsdóttir, Guðný Helga Herbertsdóttir, Hafdís Hansdóttir og Valgeir M. Baldursson.

Ólafur hefur starfað hjá VÍS frá árinu 2002, fyrst sem lögmaður á tjónasviði, svo sem yfirlögfræðingur og ritari stjórnar frá 2010 til 2017, en að lokum sem framkvæmdastjóri frá september 2017. Ólafi er þakkað fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og mikilvægt framlag í gegnum árin.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK