Hratt gengur að reisa nýtt og fullkomið gagnaver við Korputorg. Þar verður frágangur og öryggi þannig að mun fullnægja þörfum kröfuhörðustu viðskiptavina og myndi þurfa meiriháttar hamfarir til að trufla starfsemina.
Fram til þessa hafa íslensk gagnaver einkum verið nýtt til rafmyntaframleiðslu og segir Þorsteinn Gunnarsson skýringuna einkum vera þá að Ísland vanti betri tengingar við umheiminn.
Með aukinni bandvídd munu gagnaver hér á landi geta boðið fjölbreyttari þjónustu og verið mjög samkeppnishæf enda rekstrarkostnaður tölvuskáps á bilinu 30-70% lægri í Reykjavík en í helstu borgum Evrópu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag