Vöruskiptin óhagstæð um 12,2 milljarða

Vöruviðskipti í ágúst voru óhagstæð um 12,2 milljarða samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. 

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir ágúst 2019 nam fob-verðmæti vöruútflutnings 44,8 milljörðum króna og fob-verðmæti vöruinnflutnings 57,0 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í ágúst, reiknuð á fob-verðmæti, voru því óhagstæð um 12,2 milljarða króna. Í ágúst 2018 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 18,8 milljarða króna á gengi hvors árs. Skip og flugvélar hafa óveruleg áhrif á niðurstöður að þessu sinni.

Í ágúst 2019 var verðmæti vöruútflutnings þremur milljörðum króna lægra en í ágúst 2018, eða 6,2% á gengi hvors árs. Mest var lækkunin í viðskiptum með iðnaðarvörur og sjávarafurðir.

Verðmæti vöruinnflutnings í ágúst 2019 var 9,5 milljörðum króna minna en í ágúst 2018, eða 14,3% á gengi hvors árs. Samdráttur í innflutningi var á öllum liðum milli tímabila en mestur var hann í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti og smurolíum.

Hafa skal í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar, segir í frétt Hagstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK