Guðbrandur Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Borgarplasts hf. og hefur hann þegar hafið störf.
Borgarplast framleiðir fiskikör, frauðkassa fyrir ferskan fisk og lax, frauðeinangrun og ýmsar fráveitulausnir á borð við brunna, olíuskiljur og rotþrær.
Fráfarandi framkvæmdastjóri félagsins Haukur Skúlason leiddi sameiningu félagsins við Plastgerð Suðurnesja á síðasta ári og uppbyggingu á nýrri öflugri verksmiðju fyrir frauðkassa á Ásbrú í Reykjanesbæ sem tók nýlega til starfa.
Á Völuteigi 31 í Mosfellsbæ rekur Borgarplast hverfisteypu fyrir fiskikör og svipaðar vörur þar sem er einnig aðalskrifstofa félagsins. Hjá félaginu starfa 38 starfsmenn.
Guðbrandur starfaði í sjávarútvegi um árabil, síðast sem framkvæmdastjóri ÚA og Brims á árunum 1996-2004. Þá var hann forstjóri Mjólkursamsölunnar á árunum 2005-2008. Hann var framkvæmdastjóri Plastprents 2010-2012, framkvæmdastjóri PwC 2013-2016 og framkvæmdastjóri Heimavalla frá 2016 til loka mars á þessu ári. Guðbrandur er með B.Sc.-próf í matvælafræði frá Háskóla Íslands og MBA-próf frá Edinborgarháskóla.
„Borgarplast er spennandi fyrirtæki og hvílir rekstur þess á traustum og gömlum grunni. Félagið hefur mörg góð tækifæri til að sækja fram og stækka. Umhverfismál munu móta rekstur félagsins í framtíðinni eins og allra annarra umbúðafyrirtækja en félagið er í dag að endurvinna frauð og hyggst auka endurvinnslu af slíku tagi,“ er haft eftir Guðbrandi í tilkynningu.