Einkahlutafélagið 101 Austurstræti hefur fengið heimild Héraðsdóms Reykjavíkur til fjárhagslegrar endurskipulagningar. Með úrskurði dómstólsins er heimildin veitt til klukkan 11 miðvikudaginn 21. október.
Félagið hefur farið með rekstur skemmtistaðarins Austurs.
Aðstoðarmaður skuldara við fjárhagslega endurskipulagningu er Atli Már Ingólfsson lögmaður, en málið verður tekið fyrir að nýju þegar heimildin rennur út.