Þótt fyrirtækið Iðnmark sé ekki á vörum margra Íslendinga frá degi til dags þekkir hvert einasta mannsbarn vörurnar sem frá fyrirtækinu streyma árið um kring. Stjörnusnakk og Stjörnupopp eru vörur sem flestir hafa bragðað á einhvern tíma á lífsleiðinni og mörgum þykir nauðsynlegt að eiga þær í einhverri mynd í búrskápnum - að minnsta kosti um jól og áramót.
Sigurjón Dagbjartsson er framkvæmdastjóri fyrirtækisins og rætt var við hann í sérblaði sem fylgdi Morgunblaðinu í morgun í tilefni þess að Creditinfo hefur nú gefið út í ellefta sinn lista yfir framúrskarandi fyrirtæki. Iðnmark er í hópi fárra fyrirtækja sem alltaf hafa vermt sæti á listanum.
Fyrirtækið er staðsett í Hafnarfirði og í hverjum mánuði framleiðir það 200 þúsund poka af snakkvörum. Sigurjón segir að einn lykillinn að góðu gengi fyrirtækisins sé stöðug vöruþróun. Meðal vörutegunda sem komið hafa frá Iðnmarki og fást í búðum í dag eru Fitness-popp, Prótein-popp, Karamellupopp og alls konar snakktegundir. „Þar má nefna paprikustjörnur, ostastjörnur, Sour Créme-snakk, og svo Partý mix og skrúfur,“ útskýrir Sigurjón, en það er greinilega lengi hægt að halda áfram að þróa snakk í ýmsar áttir.
Listann yfir fyrirtækin sem komust á framúrskarandilista Creditinfo 2020 má finna hér.