Maríjon Ósk ráðin til Kvis

Maríjon Ósk Nóadóttir.
Maríjon Ósk Nóadóttir. Ljósmynd/Aðsend

Maríjon Ósk Nóadóttir hefur verið ráðin til almannatengslafyrirtækisins Kvis þar sem hún kemur til með að sinna fjölmiðla- og lögfræðiráðgjöf.

Maríjon, sem er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands, kemur yfir til Kvis frá Póst- og fjarskiptastofnun. Þar starfaði hún í sex ár sem lögfræðingur og sinnti meðal annars úrlausn ágreiningsmála og almennri ráðgjöf á fjarskiptasviði.

Áður en hún hóf störf hjá Póst- og fjarskiptastofnun vann hún sem fulltrúi hjá Nordik lögfræðiþjónustu.

„Ég er mjög spennt að vera komin aftur yfir í einkageirann og tekst með glöðu geði á við öll þau verkefni sem fjölmiðlaheimurinn hefur upp á að bjóða. Reynsla mín og þekking á fjarskiptaumhverfinu mun einnig koma sér vel þar sem að fjölmiðlar og fjarskipti eru sífellt meira að tvinnast saman. Það eru spennandi tímar framundan,“ segir Maríjon Ósk í tilkynningu.

Kvis var stofnað árið 2015 og sérhæfir sig í almannatengslum og ráðgjöf á sviði fjölmiðlunar en á meðal viðskiptavina fyrirtækisins eru Malbikstöðin, Netflix og Securitas.

„Það er mikill fengur í Maríjon fyrir núverandi og verðandi viðskiptavini og veit ég það manna best eftir sameiginlega skólagöngu og áralangt samstarf með henni. Hún er ákveðin, skemmtileg og öflug kona og ekki skemmir svo fyrir að við þurfum báðar að lifa með því að eiga engar nöfnur. Við skiljum hvor aðra,“ segir Hödd Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Kvis, í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK