Eyrún nýr framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum

Eyrún Anna Einarsdóttir.
Eyrún Anna Einarsdóttir. Ljósmynd/Landsbankinn

Eyrún Anna Einarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri eignastýringar og miðlunar hjá Landsbankanum en hún á fimmtán ára starfsferil að baki í bankanum.

„Hún starfaði fyrst við Safnastýringu sem heyrði undir Eignastýringu bankans og stýrði þeirri einingu frá 2010 til 2012. Undanfarin níu ár hefur Eyrún verið forstöðumaður Viðskiptalausna Eignastýringar og miðlunar þar sem hún hefur verið ábyrg fyrir árangursviðmiðum, áætlanagerð og þróun, sem og flestum breytingum og rekstrarmálum sviðsins,“ segir í tilkynningu frá Landsbankanum.

Eyrún er menntaður iðnaðarverkfræðingur úr Háskóla Íslands og með meistaragráðu í fjárfestingastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík ásamt prófi í verðbréfaviðskiptum.

„Eyrún er reynslumikill stjórnandi sem hefur starfað lengi á markaðnum og þekkir vel þær daglegu áskoranir sem viðskiptavinir standa frammi fyrir. Eignastýring og miðlun snýst um traust og við leggjum áherslu á langtíma viðskiptasambönd. Eyrún hefur sýnt og sannað að hún er öflugur leiðtogi og hefur sterka sýn á það hvernig Landsbankinn getur skarað fram úr í þjónustu við viðskiptavini. Hún sér hvar tækifæri bankans liggja við að móta nýja tíma í fjármálaþjónustu, auka ánægju viðskiptavina og skila góðri afkomu fyrir bankann,“ er haft eftir Lilju Björk Einarsdóttur í tilkynningu frá Landsbankanum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK