Tap þrátt fyrir 3,3 milljarða tekjuaukningu

Íslandshótel þurfti að loka nokkrum hótelum vegna Covid-19 faraldursins, en …
Íslandshótel þurfti að loka nokkrum hótelum vegna Covid-19 faraldursins, en hafa opnað þau öll aftur. mbl.is/Baldur Arnarson

Tekjur Íslandshótela fyrstu sex mánuði ársins jukust um 3,3 milljarða króna miðað við sama tímabil á síðasta ári.

Tekjur hótelkeðjunnar námu 1,9 milljörðum króna á fyrri helmingi síðasta árs, en námu nú 5,2 milljörðum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. 

Tap af rekstrinum

Öll hótel félagsins hafa nú verið opnuð eftir að nokkur þeirra höfðu áður verið lokuð í um 2 ár vegna Covid-19 faraldursins, sem hafði tvímælalaust áhrif á reksturinn.

Samkvæmt uppgjörinu var tap af rekstri félagsins upp á 417 milljónir króna, en mikill viðsnúningur varð í sögulegu samhengi. 

Vending varð vegna fjölgun ferðamanna og hámarksnýtingu hótelrýma og lofar góðu fyrir síðari hluta rekstrarársins. 

Reiknað er með mikilli uppsveiflu á þriðja ársfjórðungi, enda ferðamennska í hámarki. 

Íslandshótel rekur 18 hótel með 1.963 herbergi víða á landinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK