Heimilt að stofna hlutafélag um rekstur Carbfix

Carbfix byrjaði árið 2007 að þróa aðferð til að binda …
Carbfix byrjaði árið 2007 að þróa aðferð til að binda koltvísýring í jarðlögum neðanjarðar. Ljósmynd/Aðsend

Eigendur Orkuveitu Reykjavíkur hafa einróma staðfest samþykki stjórnar OR-eigna fyrir heimild til að stofna hlutafélag um rekstur Carbfix, sem er dótturfélag OR.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Tilgangurinn er að gera Carbfix mögulegt að beita tækni sinni í innlendum og alþjóðlegum verkefnum sem stuðla að því að minnka losun koltvísýrings út í andrúmsloftið og styðja þannig við loftslagsmarkmið Íslands og heimsins.

„Carbfix vinnur að nokkrum viðamiklum verkefnum til að nýta tækni sína og þróa hana frekar, og fleiri verkefni eru í burðarliðnum. Ekki er talið raunhæft eða skynsamlegt að fjármagna vöxt verkefna Carbfix úr sjóðum Orkuveitu Reykjavíkur eða eigenda hennar, enda um áhættufjárfestingar að ræða,“ segir í tilkynningunni.

„Því er gert ráð fyrir að fá virðisaukandi fjárfesta að félaginu, en gengið er út frá því að það verði áfram í meirihlutaeigu Orkuveitu Reykjavíkur. Þá verða hugverk Carbfix áfram alfarið í eigu Orkuveitunnar og þeirra sem komið hafa að þróun einstakra verkefna.“

Carbfix byrjaði árið 2007 að þróa aðferð til að binda koltvísýring í jarðlögum neðanjarðar. Fyrirtækið hefur beitt henni samfleytt frá árinu 2012 til að binda koltvísýring, einkum úr útblæstri Hellisheiðarvirkjunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK