Anton Máni Svansson endurkjörinn formaður SÍK

Ný stjórn SÍK ásamt viðskiptastjóra SÍK hjá SI, talið frá …
Ný stjórn SÍK ásamt viðskiptastjóra SÍK hjá SI, talið frá vinstri, Inga Linda Karlsdóttir hjá Skot Productions, Lilja Björk Guðmundsdóttir hjá SI, Anton Máni Svansson hjá Join Motion Pictures, Agnes Johansen hjá RVK Studios, Hilmar Sigurðsson hjá GunHil, Heather Millard hjá Compass Films og Hanna Björk Valsdóttir hjá Akkeri Films. Ljósmynd/Aðsend

Átta kvikmyndaframleiðendur hafa gengið til liðs við Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda. Nú eru því 39 fyrirtæki aðilar að SÍK. Aðalfundur SÍK var haldinn nýlega og þar var Anton Máni Svansson endurkjörinn formaður sambandsins.

Á aðalfundinum var undirritað nýtt samkomulag á milli SÍK og Samtaka iðnaðarins en 10 ár eru liðin frá því að SÍK gerðist aðildarfélag hjá SI. Anton segir samstarfið vera gott að samstaða kvikmyndaframleiðenda hafi sjaldan verið sterkari.

„Samstarf okkar og SI verður sterkara með hverju árinu. Ég er spenntur fyrir áframhaldandi uppbyggingu atvinnugreinar okkar í samvinnu við samtökin. Framundan er fjöldinn allur af mikilvægum og krefjandi verkefnum sem ég er bjartsýnn á að við munum leysa vel af hendi þar sem samstaða kvikmyndaframleiðenda hefur sjaldan verið jafn sterk og nú,“ er haft eftir Antoni í fréttatilkynningu.

Fagna fleiri félagsmönnum

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir í fréttatilkynningu að það sé ánægjulegt að fá inn fleiri félagsmenn í kvikmyndaiðnaðinum.

„Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með íslenskum kvikmyndaiðnaði vaxa og dafna á undanförnum árum. Samstarf og samvinna Samtaka iðnaðarins og SÍK hefur gengið vel á síðastliðnum áratug og fögnum við því að fá inn enn fleiri félagsmenn í kvikmyndaiðnaði á þessum tímamótum þegar áratugur er liðinn frá aðild SÍK að SI.“ 

Ný stjórn var kosin á aðalfundi SÍK sem haldinn var í Húsi atvinnulífsins fyrir skömmu. Í nýrri stjórn SÍK sitja Anton Máni Svansson hjá Join Motion Pictures sem er jafnframt formaður SÍK, Hilmar Sigurðsson hjá GunHil, Kristinn Þórðarson hjá Black Cliff Productions, Agnes Johansen hjá RVK Studios, Hanna Björk Valsdóttir hjá Akkeri Films, Inga Lind Karlsdóttir hjá Skot Productions og Heather Millard hjá Compass Films.  

„Ég tel mikinn feng í því að fá þær Agnesi Johansen, Hönnu Björk Valsdóttur og Heather Millard inn í stjórn SÍK. Á sama tíma vil ég þakka Hlín Jóhannesdóttur, Guðbergi Davíðssyni og Júlíusi Kemp fyrir þeirra mikilvæga framlag og mjög ánægjulegt samstarf,“ segir Anton í tilkynningunni.

Anton Máni Svansson var endurkjörinn formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðanda.
Anton Máni Svansson var endurkjörinn formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðanda. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK