„Þetta er búið að vera ljóst lengi. Þetta er engin staða sem er að koma upp núna,“ segir Þorsteinn Pálsson, formaður sáttanefndar um sjávarútveg, en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegsráðherra skipaði nefndina í vor.
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi áætla að veiðigjöld verði 10,5 til 11 milljarðar á næsta ári, sem er ríflega tvöföldun frá yfirstandandi veiðiári. Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi hafa gagnrýnt þessa miklu hækkun veiðigjalda, en við útreikninga gjaldanna er tekið mið af árinu 2015 þegar afkoma í sjávarútvegi var betri en nú er.
Meginhlutverk sáttanefndarinnar er að taka gjaldheimtu í sjávarútvegi til endurskoðunar og hefur nefndin tíma til 1. desember á þessu ári til að skila af sér tillögum.
„Það er hlutverk nefndarinnar að kanna hvort hægt sé að ná breiðari sátt um annars konar innheimtu á gjöldunum og hversu mikil hún á að vera,“ segir Þorsteinn. „En nefndin er að störfum og því ekkert hægt að segja á þessu stigi hver niðurstaðan verður.“
Ekkert starf er hjá nefndinni í júlí vegna sumarleyfa, en nefndin kemur aftur saman í ágúst að sögn Þorsteins.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 606,32 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 383,70 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 279,12 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 253,40 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 329,86 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Margrét GK 33 Lína | |
---|---|
Ýsa | 4.669 kg |
Þorskur | 1.953 kg |
Steinbítur | 300 kg |
Keila | 30 kg |
Langa | 14 kg |
Karfi | 5 kg |
Samtals | 6.971 kg |
19.9.24 Sigrún EA 52 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 908 kg |
Samtals | 908 kg |
19.9.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 347 kg |
Skarkoli | 286 kg |
Langlúra | 106 kg |
Þorskur | 34 kg |
Steinbítur | 20 kg |
Þykkvalúra | 14 kg |
Skrápflúra | 14 kg |
Karfi | 13 kg |
Sandkoli | 9 kg |
Samtals | 843 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 606,32 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 383,70 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 279,12 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 253,40 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 329,86 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Margrét GK 33 Lína | |
---|---|
Ýsa | 4.669 kg |
Þorskur | 1.953 kg |
Steinbítur | 300 kg |
Keila | 30 kg |
Langa | 14 kg |
Karfi | 5 kg |
Samtals | 6.971 kg |
19.9.24 Sigrún EA 52 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 908 kg |
Samtals | 908 kg |
19.9.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 347 kg |
Skarkoli | 286 kg |
Langlúra | 106 kg |
Þorskur | 34 kg |
Steinbítur | 20 kg |
Þykkvalúra | 14 kg |
Skrápflúra | 14 kg |
Karfi | 13 kg |
Sandkoli | 9 kg |
Samtals | 843 kg |