Varðskipið Óðinn var tekið í slipp í Reykjavíkurhöfn í morgun og tókst það vel, þó tvær tilraunir þyrfti til, að því er segir í tilkynningu.
Óðinn er frægur fyrir að hafa tekið þátt í öllum þremur þorskastríðunum en í dag þjónar hann sem fljótandi sýning á vegum Sjóminjasafnsins í Reykjavík, nánar tiltekið við Óðinsbryggju í Vesturbugt.
„Eins og gefur að skilja er varðveisla og viðhald skips af þessari stærðargráðu ekki einfalt verk, en Óðinn býr svo vel að eiga fjölda hollvina sem koma þar að málum. Þó svo að Óðinn hafi ekki siglt um úfin höf síðustu árin, þarf að sinna reglubundnu viðhaldi og núna er komið að nauðsynlegri slipptöku skipsins í Reykjavíkurhöfn og verður það án efa áhrifarík og ánægjuleg sjón,“ segir í tilkynningunni frá Borgarsögusafninu.
Þar verður hann botnhreinsaður, málaður og kannað verður með öxuldrátt. Ráðgert er að framkvæmdin taki um tvær vikur. Að því loknu verður Óðni lagt aftur við bryggju hjá Sjóminjasafninu.
Varðskipið Óðinn sem var smíðað í Álaborg í Danmörku árið 1959 kom til landsins 27. janúar 1960. Árið 2008 afsalaði ríkissjóður Óðni til Hollvinasamtaka Óðins og í kjölfarið tók Sjóminjasafnið formlega við varðveislu skipsins í samvinnu við Hollvinasamtökin.
Varðskipið Óðinn fékk þar með nýtt hlutverk sem lifandi hluti af safninu.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.9.24 | 502,94 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.9.24 | 464,81 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.9.24 | 247,40 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.9.24 | 193,95 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.9.24 | 267,83 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.9.24 | 402,58 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
20.9.24 Ebbi AK 37 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 1.399 kg |
Ýsa | 56 kg |
Ufsi | 15 kg |
Samtals | 1.470 kg |
20.9.24 Ísak AK 67 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 2.899 kg |
Skarkoli | 23 kg |
Ýsa | 12 kg |
Samtals | 2.934 kg |
20.9.24 Valþór EA 313 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 272 kg |
Samtals | 272 kg |
20.9.24 Emilý SU 157 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 208 kg |
Þorskur | 82 kg |
Samtals | 290 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.9.24 | 502,94 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.9.24 | 464,81 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.9.24 | 247,40 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.9.24 | 193,95 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.9.24 | 267,83 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.9.24 | 402,58 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
20.9.24 Ebbi AK 37 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 1.399 kg |
Ýsa | 56 kg |
Ufsi | 15 kg |
Samtals | 1.470 kg |
20.9.24 Ísak AK 67 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 2.899 kg |
Skarkoli | 23 kg |
Ýsa | 12 kg |
Samtals | 2.934 kg |
20.9.24 Valþór EA 313 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 272 kg |
Samtals | 272 kg |
20.9.24 Emilý SU 157 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 208 kg |
Þorskur | 82 kg |
Samtals | 290 kg |