Hægst hefur verulega á kolmunnaveiðunum í færeysku lögsögunni að undanförnu og síðasta sólarhringinn var veiðin léleg. Þetta kemur fram á vefsíðu Síldarvinnslunnar en fyrir vikið er ráðgert að skip félagsins geri hlé á veiðunum.
Þar segir að Bjarni Ólafsson AK hafi þegar hætt veiðum í bili, Margrét EA hafi landað á Seyðisfirði rúmlega 2.000 tonnum í gær og einnig gert hlé á veiðunum, Beitir NK sé á landleið með 3.000 tonn og muni væntanlega landa á Seyðisfirði og Börkur NK komi til Neskaupstaðar í dag með tæplega 2.300 tonn. Hákon EA hafi enn verið á miðunum þegar síðast hafi frést en verið við það að fylla að því er segir í umfjölluninni.
„Það hefur hægst verulega á veiðinni frá því hún var best. Í þessum túr var þetta þó köflótt hjá okkur. Þetta er í reyndinni allt hefðbundið. Þegar kemur fram í maí og kolmunninn gengur norður eftir dreifir hann sér og þá minnkar veiðin eðlilega. Í þessari veiðiferð byrjuðum við að veiða norður í Ræsi og austan í Færeyjabanka en enduðum sunnan við Munkagrunn. Við höfum oft verið að veiða kolmunna fram undir sjómannadag en vegna loðnubrestsins var veitt meira en venjulega niður á Rockall þannig að skipin hafa veitt meira af kvótanum en að öllu jöfnu. Það er mjög eðlilegt að gert sé hlé á veiðunum núna vegna þess að veiðin fer minnkandi og vegna kvótastöðunnar,“ er haft eftir Hjörvari Hjálmarssyni, skipstjóra á Berki.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.9.24 | 504,19 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.9.24 | 465,37 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.9.24 | 247,95 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.9.24 | 193,95 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.9.24 | 267,83 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.9.24 | 403,59 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
20.9.24 Emilý SU 157 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 208 kg |
Þorskur | 82 kg |
Samtals | 290 kg |
20.9.24 Fjóla SH 7 Plógur | |
---|---|
Ígulker Bf B | 1.206 kg |
Samtals | 1.206 kg |
20.9.24 Sæþór EA 101 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 1.318 kg |
Ýsa | 384 kg |
Ufsi | 113 kg |
Skarkoli | 10 kg |
Steinbítur | 3 kg |
Karfi | 1 kg |
Samtals | 1.829 kg |
20.9.24 Gunnþór ÞH 75 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 803 kg |
Ufsi | 81 kg |
Karfi | 21 kg |
Hlýri | 4 kg |
Samtals | 909 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.9.24 | 504,19 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.9.24 | 465,37 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.9.24 | 247,95 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.9.24 | 193,95 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.9.24 | 267,83 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.9.24 | 403,59 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
20.9.24 Emilý SU 157 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 208 kg |
Þorskur | 82 kg |
Samtals | 290 kg |
20.9.24 Fjóla SH 7 Plógur | |
---|---|
Ígulker Bf B | 1.206 kg |
Samtals | 1.206 kg |
20.9.24 Sæþór EA 101 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 1.318 kg |
Ýsa | 384 kg |
Ufsi | 113 kg |
Skarkoli | 10 kg |
Steinbítur | 3 kg |
Karfi | 1 kg |
Samtals | 1.829 kg |
20.9.24 Gunnþór ÞH 75 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 803 kg |
Ufsi | 81 kg |
Karfi | 21 kg |
Hlýri | 4 kg |
Samtals | 909 kg |