Yfirvöld í Kanada hafa komið í framkvæmd ráðstöfunum til að vernda stofn sléttbaka frekar eftir að sex hvalir hafa drepist síðan í júní í St. Lawrence-flóa. Sléttbakar eru í bráðri útrýmingarhættu, en talið er að aðeins rúmlega 400 hvalir séu eftir í Norður-Atlantshafi.
Að minnsta kosti 3 af þeim 6 sléttbökum sem drepist hafa í sumar lentu að öllum líkindum í árekstri við skip samkvæmt Marc Garneau, samgönguráðherra Kanada.
Sléttbakur hefur að því er talið er ekki drepist á svæðinu síðan árið 2017 fyrr en nú. Samgönguyfirvöld komu því á hraðatakmörkun í St. Lawrence-flóa í júní, sem takmarkar hraða skipa við 10 hnúta.
í kjölfarið voru settar frekari hraðatakmarkanir yfir stórt svæði á flóanum fyrir skip sem eru lengri en 20 metrar. Nú hafa hraðatakmarkanir verið færðar út til að ná til allra skipa yfir 13 metrar að lengd og eftirlitsflugum yfir flóanum hefur verið fjölgað úr 7 í 24 síðan í lok júní. Þá hefur sextán þúsund ferkílómetra svæði einnig verið lokað fyrir veiðum í atvinnuskyni í tilraun til að vernda sléttbakana.
Eftirlitsflugvélar leita nú að þremur sléttbökum til viðbótar sem hafa sést flæktir í veiðarfæri á síðustu dögum.
„Tilraunir til að losa þá verða aðeins möguleiki ef það er hægt að framkvæma það á öruggan hátt. Sléttbakar eru á meðal erfiðustu tegunda sjávarspendýra til að losa vegna stærðar þeirra, styrks og hegðunar,“ segir í tilkynningu samtaka um sjávarútveg í Kanada.
Samkvæmt kanadískum yfirvöldum er nú talið að sléttbakar séu aðeins 412 talsins, að teknu tilliti þeirra 7 kálfa sem hafa nýlega fæðst. Eru sléttbakar á meðal þeirra dýrategunda sem eru í hvað mesti útrýmingarhættu í heiminum.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 606,32 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 383,70 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 279,12 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 253,40 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 329,86 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Jökull ÞH 299 Grálúðunet | |
---|---|
Þorskur | 24.903 kg |
Grálúða | 229 kg |
Samtals | 25.132 kg |
19.9.24 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Ýsa | 1.689 kg |
Þorskur | 1.181 kg |
Keila | 277 kg |
Steinbítur | 18 kg |
Ufsi | 15 kg |
Karfi | 8 kg |
Samtals | 3.188 kg |
19.9.24 Hrönn NS 50 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 12 kg |
Samtals | 12 kg |
19.9.24 Margrét GK 33 Lína | |
---|---|
Ýsa | 4.669 kg |
Þorskur | 1.953 kg |
Steinbítur | 300 kg |
Keila | 30 kg |
Langa | 14 kg |
Karfi | 5 kg |
Samtals | 6.971 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 606,32 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 383,70 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 279,12 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 253,40 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 329,86 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Jökull ÞH 299 Grálúðunet | |
---|---|
Þorskur | 24.903 kg |
Grálúða | 229 kg |
Samtals | 25.132 kg |
19.9.24 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Ýsa | 1.689 kg |
Þorskur | 1.181 kg |
Keila | 277 kg |
Steinbítur | 18 kg |
Ufsi | 15 kg |
Karfi | 8 kg |
Samtals | 3.188 kg |
19.9.24 Hrönn NS 50 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 12 kg |
Samtals | 12 kg |
19.9.24 Margrét GK 33 Lína | |
---|---|
Ýsa | 4.669 kg |
Þorskur | 1.953 kg |
Steinbítur | 300 kg |
Keila | 30 kg |
Langa | 14 kg |
Karfi | 5 kg |
Samtals | 6.971 kg |