Enginn kominn á bætur

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir stöðu starfsfólks Ísfisks skelfilega.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir stöðu starfsfólks Ísfisks skelfilega. mbl.is/Kristinn Magnúsosn

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að enginn starfsmaður Ísfisks sé kominn á atvinnuleysisbætur líkt og kom fram í frétt mbl.is í gærkvöldi. Hið rétta sé að margir hafi skráð sig atvinnulausa en þeirra réttur skapast ekki fyrr en uppsagnarfrestur starfsmanna er útrunninn, fyrirtækið fer í gjaldþrot eða hvort tveggja. Þetta kemur fram í færslu Vilhjálms á Facebook.

Öllum starfs­mönn­um fisk­vinnslu­fyr­ir­tæk­is­ins Ísfisks á Akra­nesi var sagt upp störf­um í lok september. Um tæp­lega 50 manns er að ræða. 

„Hið rétt er að staða starfsfólks Ísfisks er skelfileg og hún er ömurleg, en fólkið hefur ekki fengið nein laun greidd i rúma tvo mánuði fyrir utan 50.000 kr. innágreiðslu fyrir um hálfum mánuði síðan eða svo.

Þessi staða er alls ekki boðleg stundinni lengur og hefur Verkalýðsfélag Akraness komið þeim skilaboðum ítrekað á framfæri við forsvarsmenn fyrirtækisins.

Verkalýðsfélag Akraness hefur einnig tilkynnt að félagið sé tilbúið að lána öllum starfsmönnum 250.000 krónur með veði í launakröfu sem félagið mun gera fyrir starfsmenn vegna vangreiddra launa á Ábyrgðarsjóð launa en sú lánveiting getur ekki átt sér stað fyrr en fyrirtækið færi í gjaldþrot. En þetta er sama leið og VR gerði fyrir félagsmenn sína sem störfuðu hjá WOW air þegar það varð gjaldþrota.

Því miður hefur ítrekað verið dregið að lausn sé að koma á fjárhagsmál fyrirtækisins og alltaf er verið að biðja um lengri frest til að redda fjármálunum. Margoft hefur verið sagt að þetta muni skýrast þennan dag eða þennan og svo gerist ekkert!

Á meðan engjast starfsmenn um launalausir, enda hafa þeir ekki fengið laun sín greidd í rúma 60 daga og meðan ekkert gerist þá eiga starfsmenn ekki rétt á atvinnuleysisgreiðslum og félagið getur ekki lánað þessar 250.000 krónur því veð í kröfur á Ábyrgðarsjóð launa er ekki til staðar þar sem fyrirtækið hefur ekki verið lýst gjaldþrota.

Þetta er algerlega óboðlegt og ef fyrirtækið er að leita leiða til að rétta af fjárhag fyrirtækisins þá er það algert skilyrði að launagreiðslum til starfsmanna verði komið tafarlaust í lag.

Ég alla vega sætti mig ekki við framsetningu á þessari frétt eins og það sé bara „allt í fínu lagi“ þar sem fólkið sé „komið“ á atvinnuleysisbætur, þegar hið rétta er að það er búið að vera launalaust og fast í viðjum óvissunnar á meðan fyrirtækið leitar leiða til að uppfylla skilyrði fyrir lánveitingu frá Byggðastofnun,“ segir í opinni færslu Vilhjálms á Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.9.24 561,35 kr/kg
Þorskur, slægður 18.9.24 601,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.9.24 245,22 kr/kg
Ýsa, slægð 18.9.24 294,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.9.24 221,87 kr/kg
Ufsi, slægður 18.9.24 284,94 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 18.9.24 275,09 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.9.24 Hópsnes GK 77 Línutrekt
Þorskur 156 kg
Ýsa 96 kg
Hlýri 57 kg
Steinbítur 23 kg
Keila 10 kg
Samtals 342 kg
18.9.24 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 4.401 kg
Ýsa 2.351 kg
Steinbítur 13 kg
Hlýri 3 kg
Samtals 6.768 kg
18.9.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt
Þorskur 461 kg
Ýsa 181 kg
Steinbítur 37 kg
Hlýri 29 kg
Keila 8 kg
Samtals 716 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.9.24 561,35 kr/kg
Þorskur, slægður 18.9.24 601,90 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.9.24 245,22 kr/kg
Ýsa, slægð 18.9.24 294,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.9.24 221,87 kr/kg
Ufsi, slægður 18.9.24 284,94 kr/kg
Djúpkarfi 12.9.24 378,00 kr/kg
Gullkarfi 18.9.24 275,09 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 18.9.24 314,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.9.24 Hópsnes GK 77 Línutrekt
Þorskur 156 kg
Ýsa 96 kg
Hlýri 57 kg
Steinbítur 23 kg
Keila 10 kg
Samtals 342 kg
18.9.24 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 4.401 kg
Ýsa 2.351 kg
Steinbítur 13 kg
Hlýri 3 kg
Samtals 6.768 kg
18.9.24 Óli Á Stað GK 99 Línutrekt
Þorskur 461 kg
Ýsa 181 kg
Steinbítur 37 kg
Hlýri 29 kg
Keila 8 kg
Samtals 716 kg

Skoða allar landanir »