Kristján H. Johannessen
„Það er bara eiginlega verið að segja mönnum að hætta að stunda grásleppuveiðar, svo einfalt er það nú,“ segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda (LS), í Morgunblaðinu í dagum drög að reglugerð um hrognkelsaveiðar 2020 sem nú eru til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda.
Í reglugerðardrögunum eru helstu nýmæli meðal annars þau að útgerð þarf að sjá til þess áður en veiðiferð hefst að báturinn hafi aflaheimildir fyrir ætluðum meðafla; hámarkslengd neta á hvern bát verði stytt um helming; net skuli dregin eigi síðar en þremur sólarhringum eftir lögn í stað fjögurra og að Fiskistofu verði heimilt að svipta bát veiðileyfi ef um óeðlilega veiði á botnfisktegundum er að ræða. Nánar má lesa um þetta í sjálfum drögunum.
Örn segir núverandi netalengd hentuga og furðar sig á boðuðum breytingum, en samkvæmt drögnum er hverjum báti heimilt að hafa samanlagða teinalengd neta til hrognkelsaveiða allt að 3.750 metra á vertíð í stað 7.500 metra.
„Sú netalengd sem hefur verið er talin mjög góð og hentug fyrir veiðimenn, en veiðar hafa verið á pari við tillögur Hafrannsóknastofnunar um hversu mikið má veiða,“ segir hann. Þá segir í drögunum að óheimilt sé að stunda aðrar veiðar en hrognkelsaveiðar í sömu ferð og að útgerð þurfi að hafa aflaheimildir sem dugi fyrir ætluðum meðafla. Örn segir þetta hæglega geta leitt til þess að menn treysti sér ekki lengur til að hefja veiðar.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 607,30 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 382,51 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 278,20 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 305,83 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
20.9.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng | |
---|---|
Ufsi | 294 kg |
Þorskur | 183 kg |
Ýsa | 5 kg |
Samtals | 482 kg |
20.9.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 200 kg |
Samtals | 200 kg |
20.9.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 2.950 kg |
Ýsa | 1.000 kg |
Hlýri | 59 kg |
Steinbítur | 16 kg |
Samtals | 4.025 kg |
20.9.24 Dagur ÞH 110 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.716 kg |
Ýsa | 483 kg |
Keila | 220 kg |
Steinbítur | 56 kg |
Hlýri | 31 kg |
Ufsi | 9 kg |
Samtals | 4.515 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 607,30 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 382,51 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 278,20 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 305,83 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
20.9.24 Óðinshani BA 407 Sjóstöng | |
---|---|
Ufsi | 294 kg |
Þorskur | 183 kg |
Ýsa | 5 kg |
Samtals | 482 kg |
20.9.24 Álft ÍS 413 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 200 kg |
Samtals | 200 kg |
20.9.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 2.950 kg |
Ýsa | 1.000 kg |
Hlýri | 59 kg |
Steinbítur | 16 kg |
Samtals | 4.025 kg |
20.9.24 Dagur ÞH 110 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.716 kg |
Ýsa | 483 kg |
Keila | 220 kg |
Steinbítur | 56 kg |
Hlýri | 31 kg |
Ufsi | 9 kg |
Samtals | 4.515 kg |