Hóta úrsögn úr FÍN fáist ekki afsökun

Þrír félagsmenn Félags íslenskra náttúrufræðinga hóta því að segja sig …
Þrír félagsmenn Félags íslenskra náttúrufræðinga hóta því að segja sig úr félaginu og telja að formaður félagsins hafi vegið að mannorði þeirra. Ljósmynd/Félag íslenskra náttúrufræðinga

Þrír félagsmenn Félags íslenskra náttúrufræðinga (FÍN), sem jafnframt eru sviðsstjórar hjá Hafrannsóknastofnun, krefjast þess að félagið dragi bréf sem það sendi Hafró opinberlega til baka og biðji þá afsökunar á ásökunum í garð stjórnendanna. Verði ekki orðið við beiðninni telja þeir sig ekki eiga annan kost en að segja sig úr félaginu, að því er fram kemur í bréfi þremenninganna til stjórnar FÍN dagsett 14. febrúar sem 200 mílur hafa undir höndum.

Segja félagsmennirnir FÍN hafa með erindi sínu, sem undirritað var af Maríönnu H. Helgadóttur formanni, til Hafró varpað fram alvarlegum ásökunum um lögbrot, hunsun, þöggun og vanvirðingu. Jafnframt hafi verið gefið í skyn að innan Hafró viðgangist einelti, kynferðislegt áreiti og kynbundin mismunun. Auk þess sé starfslýsingum og auglýsingaskyldu ekki sinnt.

Í bréfi félagsmannanna kemur fram að þeir telji formann FÍN hafi vegið að mannorði þeirra sem bæði hefur valdið stofnuninni og þeim sjálfum miska og tjóni. Einnig er talið að bréfið sem sent var Hafró hafi verið brot gegn siðareglum náttúrufræðinga.

„Við förum fram á að bréf formannsins verði tekið fyrir og rætt í fullskipaðri stjórn FÍN, hvort ekki hafi verið ástæða til að viðhafa vandaðri vinnubrögð og hvort ekki sé ástæða til að formaður/framkvæmdastjóri víki eða að lágmarki fái áminningu enda vandséð að hún geti komið framar að málefnum Hafrannsóknastofnunar.“

Ekki borið undir trúnaðarmenn

Spurt er í bréfi félagsmannanna hvort ekki hafi verið réttara að trúnaðarmenn myndu leita úrlausnar innan stofnunarinnar áður en FÍN kæmi að málum. Þá lýsa þeir undrun yfir því að trúnaðarmaður hafi dreift „ávirðingarbréfi formanns FÍN athugasemdalaust“. Segja þeir mikið misræmi milli þess er fram kemur í umræddu bréfi og samskiptum trúnaðarmanna og vísa til tölvupósts sem trúnaðarmaður sendi frá sér 15. febrúar.

Í þeim tölvupósti, sem fylgir bréfi þremenninganna, lýsir trúnaðarmaður FÍN hjá Hafró því að bréfið sem barst stofnuninni frá FÍN „var ekki samið í samráði við trúnaðarmenn né var það borið undir okkur áður en það var sent“.

Þá hafi bréf FÍN „að einhverju leyti“ byggt á samtali á fundi trúnaðarmanna og FÍN 4. febrúar og „að einhverju leyti“ á drögum að bréfi sem borin voru fram í byrjun fundar. „Aðrir hlutar bréfsins frá FÍN tengjast ekki því sem við ræddum á fundinum,“ segir í tölvupósti trúnaðarmannsins sem jafnframt telur að betra hefði verið að fulltrúar FÍN hefðu átt samtal við framkvæmdastjórn Hafró en að bréf hafi verið sent til starfsmanna Hafró.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »