Segir að ummælin hafi verið oftúlkuð

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, forstjóri Vinnslustöðvarinnar.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, forstjóri Vinnslustöðvarinnar. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, segir að orð hans úr viðtali við Sprengisand á Bylgjunni hafi verið oftúlkuð.

Í viðtalinu var Sigurgeir spurður hvort hann færi sömu leið og fimm útgerðarfélög, sem ákveðið hafa að draga til baka skaðabótakröfu sína á hendur ríkinu vegna úthlutunar makrílkvóta árin 2011-2014. Svaraði hann því neitandi.

Sigurgeir segir hins vegar að þar með sé ekki sagt að félagið hafi tekið ákvörðun um að halda kröfunni til streitu. „Stjórnin [Vinnslustöðvarinnar] fundaði á föstudag um málið. Menn ákváðu að gefa sér tíma í þetta enda ekkert sem hleypur frá okkur,“ segir Sigurgeir. Eitt eða tvö ár geti liðið þar til dómur fellur, ef tekin er ákvörðun um að halda því áfram.

Enn hafi sumsé ekki verið tekin ákvörðun um hvort Vinnslustöðin falli frá skaðabótakröfu á hendur ríkinu.

Hæstiréttur hefur þegar viðurkennt bótaskyldu íslenska ríkisins vegna úthlutunar kvótans, sem ekki er talin hafa verið samkvæmt lögum. Vinnslustöðin gerir kröfu um rúman milljarð króna, sem hún segir tjón sitt af lögbrotinu, en það kemur í hlut dómskvaddra matsmanna að skera úr um tjónið.

Aðspurður segir Sigurgeir að hann hafi skilning á sjónarmiðum þeirra fimm útgerða sem þegar hafa fellt niður skaðabótakröfur sínar. Sömuleiðis skilji hann þá sem séu sárir og reiðir út í félag hans vegna bótakröfunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,22 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Þorskur 326 kg
Ýsa 66 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 439 kg
26.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet
Grásleppa 1.934 kg
Þorskur 146 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 30 kg
Ufsi 20 kg
Steinbítur 5 kg
Rauðmagi 1 kg
Samtals 2.178 kg
26.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 2.040 kg
Þorskur 49 kg
Skarkoli 11 kg
Steinbítur 5 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 2.108 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,22 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Þorskur 326 kg
Ýsa 66 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 439 kg
26.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet
Grásleppa 1.934 kg
Þorskur 146 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 30 kg
Ufsi 20 kg
Steinbítur 5 kg
Rauðmagi 1 kg
Samtals 2.178 kg
26.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 2.040 kg
Þorskur 49 kg
Skarkoli 11 kg
Steinbítur 5 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 2.108 kg

Skoða allar landanir »