Sveitarfélögum verður heimilt að sækja um tímabundna undanþágu frá skilyrðum reglugerðar um byggðakvóta um að landa afla innan hlutaðeigandi byggðarlags ef vinnsla liggur niðri vegna kórónuveirunnar að hluta eða öllu leyti, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins.
Þar segir að Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hafi undirritað reglugerð um breytingu á úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020 til að bregðast við áhrifum faraldursins.
Breytingarnar eru gerðar í kjölfar þess að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu bárust ábendingar um að bregðast þyrfti við þeim skilyrðum sem gilda vegna úthlutunar byggðakvóta til fiskiskipa þar sem markaðsaðstæður hafa breyst umtalsvert á síðustu vikum og dögum. Snúa ábendingarnar einkum að grásleppu þar sem markaðir hafa lokast og vinnslur eru ekki tilbúnar að taka við hráefni til vinnslu þrátt fyrir að vinnslusamningar séu í gildi milli aðila.
Bent er á að reglugerðin heimilar Fiskistofu að taka til greina umsóknir um byggðakvóta sem bárust eftir umsóknarfrest í sveitarfélögum þar sem byggðakvóta hefur ekki þegar verið úthlutað.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 425,86 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 191,99 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,72 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 122,07 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 162,06 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 7.439 kg |
Ýsa | 738 kg |
Steinbítur | 48 kg |
Keila | 21 kg |
Karfi | 12 kg |
Samtals | 8.258 kg |
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.357 kg |
Þorskur | 383 kg |
Ýsa | 23 kg |
Samtals | 3.763 kg |
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.836 kg |
Samtals | 3.836 kg |
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.853 kg |
Þorskur | 296 kg |
Skarkoli | 100 kg |
Samtals | 2.249 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 425,86 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 191,99 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,72 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 122,07 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 162,06 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 7.439 kg |
Ýsa | 738 kg |
Steinbítur | 48 kg |
Keila | 21 kg |
Karfi | 12 kg |
Samtals | 8.258 kg |
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.357 kg |
Þorskur | 383 kg |
Ýsa | 23 kg |
Samtals | 3.763 kg |
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.836 kg |
Samtals | 3.836 kg |
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.853 kg |
Þorskur | 296 kg |
Skarkoli | 100 kg |
Samtals | 2.249 kg |