Ársþing Hafnasambands Íslands hófst klukkan níu í morgun. Í fyrsta skipti í rúmlega 50 ára sögu sambandsins er þingið rafrænt.
Á þinginu verða lagðar fram og ræddar þrjár tillögur, um orkuskipti í höfnum, fyrirhugaðar breytingar á hafnalögum og hugmyndir um breytingar á vigtarreglugerð.
Á þinginu mun Gísli Gíslason, fyrrverandi hafnarstjóri Faxaflóahafna, láta af formennsku í Hafnasambandinu. Gísli hefur verið hafnarstjóri frá árinu 1987. Fyrst á Akranesi sem bæjar- og hafnarstjóri, en frá árinu 2005 sem hafnarstjóri Faxaflóahafna. Hann lét af því starfi síðsumars. Þessum starfstitli fylgdi þátttaka í starfi hafnasambandsins – fyrst Hafnasambands sveitarfélaga og síðar Hafnasambands Íslands. Þar var hann varamaður í stjórn frá 1987-1994, en í stjórn frá 1994-2004 og síðan formaður stjórnar frá þeim tíma til þessa fundar.
Gísli segir að nú skilji leiðir eftir langa og afar skemmtilega og ánægjulega vinnu að málefnum hafnanna. „En því miður gerist það á fundi þar sem ekki er tækifæri til fallegrar samveru með tilheyrandi og hefðbundinni gleðistund.“
Kjörnefnd mun á þinginu í dag gera tillögu um að Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri í Hafnarfirði, taki við formennsku af Gísla. Hafnasambandsþingið átti að fara fram dagana 24.-25. september sl. í Snæfellsbæ en því varð að fresta vegna heimsfaraldursins. Í staðinn verður þingið 2022 haldið þar.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.9.24 | 502,69 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.9.24 | 428,26 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.9.24 | 246,79 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.9.24 | 193,95 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.9.24 | 267,83 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.9.24 | 404,36 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
20.9.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 539 kg |
Ufsi | 398 kg |
Karfi | 18 kg |
Samtals | 955 kg |
20.9.24 Eskey ÓF 80 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.675 kg |
Ýsa | 2.212 kg |
Ufsi | 76 kg |
Steinbítur | 43 kg |
Karfi | 3 kg |
Samtals | 6.009 kg |
20.9.24 Haukafell SF 111 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 1.514 kg |
Samtals | 1.514 kg |
20.9.24 Indriði Kristins BA 751 Lína | |
---|---|
Langa | 105 kg |
Þorskur | 94 kg |
Steinbítur | 79 kg |
Ýsa | 58 kg |
Ufsi | 14 kg |
Keila | 10 kg |
Skarkoli | 7 kg |
Karfi | 6 kg |
Samtals | 373 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.9.24 | 502,69 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.9.24 | 428,26 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.9.24 | 246,79 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.9.24 | 193,95 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.9.24 | 267,83 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.9.24 | 404,36 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
20.9.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 539 kg |
Ufsi | 398 kg |
Karfi | 18 kg |
Samtals | 955 kg |
20.9.24 Eskey ÓF 80 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.675 kg |
Ýsa | 2.212 kg |
Ufsi | 76 kg |
Steinbítur | 43 kg |
Karfi | 3 kg |
Samtals | 6.009 kg |
20.9.24 Haukafell SF 111 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 1.514 kg |
Samtals | 1.514 kg |
20.9.24 Indriði Kristins BA 751 Lína | |
---|---|
Langa | 105 kg |
Þorskur | 94 kg |
Steinbítur | 79 kg |
Ýsa | 58 kg |
Ufsi | 14 kg |
Keila | 10 kg |
Skarkoli | 7 kg |
Karfi | 6 kg |
Samtals | 373 kg |