Öll skip Samherja héldu til hafnar í var vegna hvassveðrisins sem skall á landið á miðvikudag. Áhafnirnar komust hinsvegar ekki frá borði vegna sóttvarnaráðstafanna, að því er segir í færslu á vef Samherja.
Fyrirtækið þakkar í færslunni starfsfólki fyrir „einstaka samstöðu og þrautsegju í veirumótbyr ársins“ og birtir myndir af því er skipin héldu til hafs eitt af öðru þegar veður lægði í gærkvöld og í morgun.
Kaldbakur kemur til hafnar á Akureyri á miðvikudag.
Ljósmynd/Samherji/Þorgeir Baldursson
Áhöfnin á Kaldbak.
Ljósmynd/Samherji
Kaldbakur leggst að bryggju á Akureyri.
Ljósmynd/Samherji
Björgvin EA 311 að leggja af stað frá bryggju á Akureyri. Oddur skipstjóri í brúarglugganum.
Ljósmynd/Samherji
Það var létt yfir áhöfn Björgvins EA 311 þegar skipið lá við bryggju.
Ljósmynd/Samherji
Björgvin EA 311 leggur úr höfn
Ljósmynd/Samherji
Björgúlfur EA 312 var í vtetrarklæðum er hann lagði úr Akureyrarhöfn.
Ljósmynd/Samherji
Áhöfn Bjargar EA 7.
Ljósmynd/Samherji
Björg EA 7 leggur úr höfn.
Ljósmynd/Samherji
Það var dimmt en fallegt þegar Kaldbakur sigldi frá Akureyri.
Ljósmynd/Samherji
Það er alveg ljóst að það er kominn vetur á Dalvík og leit nýja vinnsluhúsið vel út í frostinu.
Ljósmynd/Samherji
Það var fallegt en kalt á bryggjunni á Dalvík.
Ljósmynd/Samherji
Glæsileg áhöfn á Harðbak EA 3.
Ljósmynd/Samherji
Harðbakur EA 3 heldu til veiða frá Dalvík.
Ljósmynd/Samherji