Hólmfríður María Ragnhildardóttir
Mistök voru gerð þegar norska flutningaskipinu Rotsund var leyft að leggjast við bryggju í Tálknafirði í fyrradag, að sögn Ólafs Þórs Ólafssonar, sveitarstjóra Tálknafjarðarhrepps. Hafði skipið ekki heimild til að leggja að landi þar sem ekki var búið að skila inn tilkynningu um heilsufar áhafnarinnar.
Vegna sóttvarnarráðstafana verða skip sem koma að utan að senda Landhelgisgæslunni séstaka heilbrigðisyfirlýsingu vegna kórónuveirufaraldursins. Er skipum óheimilt að koma til hafnar nema slík yfirlýsing liggi fyrir. Þessi fyrirmæli voru brotin í tvígang um helgina þegar flutningaskipið Rotsund lagðist í höfn við Tálknafjörð og Patreksfjörð.
„Það sem gerðist var að skipið tilkynnti sig ekki fyrr en það var komið að bryggju, sem var of seint. Það á að gerast þannig að skipið tilkynni sig fyrst inn áður en það fær leyfi til að leggja að landi. Þarna urðu bæði mistök hjá skipstjóranum sem kom inn án þess að búið væri að tilkynna skipið, og hjá okkur að leyfa honum að leggjast að,“ segir Ólafur.
Að sögn Ólafs barst í kjölfarið athugasemd frá Samgöngustofu sem hafði verið gert viðvart um málið af Landhelgisgæslunni.
„Rétt viðbrögð hjá okkur þegar svona gerist er að vera í sambandi við Landhelgisgæsluna og neita skipinu að leggjast að áður en að búið er að ganga frá því að öll leyfi séu komin. Það er það sem þarf að laga. Þannig hefði átt að bregðast við. Við munum skerpa á verklagsreglum og erum búin að tilkynna þetta og tryggja það að þetta muni ekki gerast aftur,“ segir Ólafur.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 425,86 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 191,99 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,72 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 122,07 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 162,06 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 7.439 kg |
Ýsa | 738 kg |
Steinbítur | 48 kg |
Keila | 21 kg |
Karfi | 12 kg |
Samtals | 8.258 kg |
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.357 kg |
Þorskur | 383 kg |
Ýsa | 23 kg |
Samtals | 3.763 kg |
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.836 kg |
Samtals | 3.836 kg |
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.853 kg |
Þorskur | 296 kg |
Skarkoli | 100 kg |
Samtals | 2.249 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 425,86 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 191,99 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,72 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 122,07 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 162,06 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 7.439 kg |
Ýsa | 738 kg |
Steinbítur | 48 kg |
Keila | 21 kg |
Karfi | 12 kg |
Samtals | 8.258 kg |
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.357 kg |
Þorskur | 383 kg |
Ýsa | 23 kg |
Samtals | 3.763 kg |
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.836 kg |
Samtals | 3.836 kg |
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.853 kg |
Þorskur | 296 kg |
Skarkoli | 100 kg |
Samtals | 2.249 kg |