Unnið er hörðum höndum að koma upp nýjum eimingartækjum í húsnæði Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði. Þeim er ekki ætlað að framleiða áfengi eins og sumir lesendur kynnu að halda heldur er tækið mikilvægur þáttur í framleiðslu á fiskimjöli.
Tækin eru ekkert smáræði og vega um 30 tonn. Þau eru framleidd á Íslandi af Héðni og er hlutverk þeirra að eima upp soðið af fiskinum þannig að mjöl standi eftir, samkvæmt lýsingu í færslu á vef Loðnuvinnslunnar.
Búist er við því að afköst aukist um 100% þegar eimingartækin verða tekin í notkun. Þá munu tækin ganga á varma sem fæst frá þurrkurum fiskimjölverksmiðjunnar. „Þetta er mjög gott, því að eimingartækin gömlu voru orðin hálfgerður flöskuháls, það er búið að stækka þurrkarana og það er nýr sjóðari og þessi nýju tæki munu ganga miklu betur við þann búnað allan,“ segir Magnús Ásgrímsson, verksmiðjustjóri Loðnuvinnslunnar, í færslunni.
Mikilvægt er að auka afköst um þessar mundir þar sem stefnir í sögulega loðnuvertíð.
Efri hluti eimingartækisins stendur upp úr þaki bræðslunnar og yfir það kemur síðan turn. Búist er við því að það muni taka nokkurn tíma að klára framkvæmdirnar og að þeim verði lokið upp úr áramótum.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 606,32 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 383,70 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 279,12 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 253,40 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 329,86 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Jökull ÞH 299 Grálúðunet | |
---|---|
Þorskur | 24.903 kg |
Grálúða | 229 kg |
Samtals | 25.132 kg |
19.9.24 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Ýsa | 1.689 kg |
Þorskur | 1.181 kg |
Keila | 277 kg |
Steinbítur | 18 kg |
Ufsi | 15 kg |
Karfi | 8 kg |
Samtals | 3.188 kg |
19.9.24 Hrönn NS 50 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 12 kg |
Samtals | 12 kg |
19.9.24 Margrét GK 33 Lína | |
---|---|
Ýsa | 4.669 kg |
Þorskur | 1.953 kg |
Steinbítur | 300 kg |
Keila | 30 kg |
Langa | 14 kg |
Karfi | 5 kg |
Samtals | 6.971 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.9.24 | 606,32 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.9.24 | 383,70 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.9.24 | 279,12 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.9.24 | 249,00 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 253,40 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.9.24 | 322,53 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.9.24 | 329,86 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Jökull ÞH 299 Grálúðunet | |
---|---|
Þorskur | 24.903 kg |
Grálúða | 229 kg |
Samtals | 25.132 kg |
19.9.24 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Ýsa | 1.689 kg |
Þorskur | 1.181 kg |
Keila | 277 kg |
Steinbítur | 18 kg |
Ufsi | 15 kg |
Karfi | 8 kg |
Samtals | 3.188 kg |
19.9.24 Hrönn NS 50 Handfæri | |
---|---|
Ufsi | 12 kg |
Samtals | 12 kg |
19.9.24 Margrét GK 33 Lína | |
---|---|
Ýsa | 4.669 kg |
Þorskur | 1.953 kg |
Steinbítur | 300 kg |
Keila | 30 kg |
Langa | 14 kg |
Karfi | 5 kg |
Samtals | 6.971 kg |