Helgi Bjarnason
Útgerðarmönnum smábáta á Norðaustur- og Austurlandi líst vel á áform matvælaráðherra um að taka aftur upp svæðisbundna kvóta á strandveiðum. Það má ráða af orðum útgerðarmanns á Raufarhöfn sem rætt var við. Aftur á móti eru margir smábátasjómenn óánægðir með fyrirhugaða breytingu og vilja að vandamálið verði leyst með því að auka kvótann svo allir fái að róa 48 daga yfir sumarið. Það segir útgerðarmaður í Grundarfirði.
„Þetta er alveg galið,“ segir Runólfur J. Kristjánsson, útgerðarmaður smábáts í Grundarfirði, þegar hann er spurður að því hvernig honum lítist á að fá svæðisskiptan smábátakvóta aftur. Hann segir svo sem hægt að gera þetta á ýmsan hátt. Spyr hvort ætlunin sé að svæðisskipta kvótanum eftir bátafjölda. Þá sé hætta á að kvóti brenni inni á ákveðnum svæðum, ef ekki er fiskur á miðunum, og nýtist þá engum.
„Það er galið ef það á að hverfa til þess kerfis sem var áður. Þá voru allir að berjast um þau fáu tonn sem voru í boði og þurftu að róa hvern einasta dag til að ná sem mestu og láta ota sér út í hættulega sjósókn.“
Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.9.24 | 501,11 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.9.24 | 428,26 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.9.24 | 249,57 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.9.24 | 193,95 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.9.24 | 267,83 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.9.24 | 404,77 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 20.9.24 | 48,32 kr/kg |
20.9.24 Hróðgeir Hvíti NS 89 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 39 kg |
Ufsi | 9 kg |
Samtals | 48 kg |
20.9.24 Hafdís SK 4 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 3.600 kg |
Þorskur | 1.308 kg |
Ýsa | 299 kg |
Sandkoli | 175 kg |
Steinbítur | 150 kg |
Samtals | 5.532 kg |
20.9.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 539 kg |
Ufsi | 398 kg |
Karfi | 18 kg |
Samtals | 955 kg |
20.9.24 Eskey ÓF 80 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.675 kg |
Ýsa | 2.212 kg |
Ufsi | 76 kg |
Steinbítur | 43 kg |
Karfi | 3 kg |
Samtals | 6.009 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 20.9.24 | 501,11 kr/kg |
Þorskur, slægður | 20.9.24 | 428,26 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 20.9.24 | 249,57 kr/kg |
Ýsa, slægð | 20.9.24 | 193,95 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.9.24 | 255,01 kr/kg |
Ufsi, slægður | 20.9.24 | 267,83 kr/kg |
Djúpkarfi | 20.9.24 | 301,00 kr/kg |
Gullkarfi | 20.9.24 | 404,77 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 20.9.24 | 48,32 kr/kg |
20.9.24 Hróðgeir Hvíti NS 89 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 39 kg |
Ufsi | 9 kg |
Samtals | 48 kg |
20.9.24 Hafdís SK 4 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 3.600 kg |
Þorskur | 1.308 kg |
Ýsa | 299 kg |
Sandkoli | 175 kg |
Steinbítur | 150 kg |
Samtals | 5.532 kg |
20.9.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 539 kg |
Ufsi | 398 kg |
Karfi | 18 kg |
Samtals | 955 kg |
20.9.24 Eskey ÓF 80 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.675 kg |
Ýsa | 2.212 kg |
Ufsi | 76 kg |
Steinbítur | 43 kg |
Karfi | 3 kg |
Samtals | 6.009 kg |