„Þetta er stór og góður fiskur“

Áhöfnin á Beiti NK var ánægð með aflann. Skipstjórinn segir …
Áhöfnin á Beiti NK var ánægð með aflann. Skipstjórinn segir um að ræða besta makrílinn á vertíðinni. Ljósmynd/Síldarvinnslan

Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti NK, fullyrðir að makríllinn sem skipið fékk í íslenskri lögsögu í síðasta túr hafi verið sá besti sem fengist hefur á vertíðinni, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Beitir kom til hafnar í Neskaupstað með 855 tonn af makríl á miðvikudag.

„Þegar við lukum veiðinni voru 176 mílur í land þannig að veiðin fór fram í íslenskri lögsögu eins og að undanförnu. Aflinn fékkst í sex holum. Það var dálítið lengi dregið en við fengum mest 200 tonn í holi. Þetta er stór og góður fiskur, 560 – 580 grömm. Fiskurinn er nánast átulaus og stinnur enda skilst mér að hann sé allur heilfrystur. Þetta er besti fiskurinn sem fengist hefur á vertíðinni, sannkallaður gæðamakríll,“ segir Tómas.

Hann útskýrir að það sé ekki auðvelt að ná makrílnum þar sem fiskurinn sé styggur og sprettharður. „Það hefur verið lítil veiði síðustu dagana en veiðin hefur verið köflótt og ómögulegt að segja hvenær hún glæðist á ný.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »