Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf. í Grindavík, bíður eftir leyfi til að fara til Grindavíkur, til að bjarga verðmætum fyrirtækisins. Hann segir helgina fara í að halda utan um starfsfólk fyrirtækisins og horfa fram á við.
Vísir hf. er sjávarútvegsfyrirtæki sem býr yfir skipaflota útbúnum til línuveiða, auk þess að reka saltfiskvinnslu og frystihús í Grindavík. Hjá fyrirtækinu starfa um 160 manns í landi og veltir það um 80 milljónum evra á ársgrundvelli, segir Pétur.
Mjög stórir hlutir undir
Þrátt fyrir að mikið sé undir fyrir fyrirtækið segir Pétur stóru verðmætin vera að um sé að ræða 160 manna vinnustað og öllu sem því fylgir. Það sama segir hann að eigi við um aðra starfsemi í bænum.
„Það er ástæða til að hafa áhyggjur af samfélaginu öllu í heild sinni. Það eru mjög stórir hlutir undir sem eru mun stærri en okkar starfsemi.“
Bíða þess að fá að fara inn á svæðið
Aðspurður segist Pétur bíða eftir því að fá leyfi til þess að fara og bjarga verðmætum í Grindavík.
„Allar rýmingaráætlanir miðuðu að því að bjarga fólki og það gekk vel í gær. Nú bíða menn bara og meta stöðuna, hvenær verður hægt að fara í að bjarga verðmætum,“ segir Stefán og bætir við:
„Við vitum að það er í mörg horn að líta, á meðan björgunarsveitarfólk fær ekki einu sinni að vera inni á svæðinu þá fáum við það ekki. Við vinnum þetta bara í sátt með almannavörnum og þeim sem eiga hlut í máli en við erum bara að vinna þetta í sátt með almannavörnum og þeim sem eiga hlut að máli.“
Halda utan um starfsfólk fyrirtækisins
Pétur segir helgina fara í að halda utan um starfsfólk fyrirtækisins og að fylgja eftir starfsfólki fyrirtækisins, bæði innlendu og erlendu, og hvað það vill gera.
Eru áhafnir á leið í land?
„Þeir eru að tínast í land um og eftir helgina.“