Einn hlaupari í New York-maraþoninu í Bandaríkjunum hefur vakið sérstaka athygli en hlauparinn er fiðraður. Er um að ræða öndina Wrinkle (eða á íslensku: Hrukku) en myndband af öndinni í maraþoninu hefur heldur betur slegið í gegn og verið deilt víða en maraþonið fór fram um síðustu helgi.

Myndbandinu var upphaflega deilt á instagramsíðunni Seducktive sem er haldið úti af eiganda Wrinkle og má þar sjá öndina hlaupa í maraþoninu í sértilbúnum andaskóm. Má heyra fjöldann allan af áhorfendum hvetja fiðraða hlauparann áfram sérstaklega og greinilegt að mikil stemning hefur verið í hlaupinu.
Myndbandið sprenghlægilega má sjá hér að neðan.