Viðræður í höndum samningsaðila

Kjaraviðræður | 25. nóvember 2022

Viðræður í höndum samningsaðila

„Þetta var ekki á formlegri dagskrá en auðvitað ræðum við utan dagskrár líka. Þetta er stórt mál sem er í gangi núna,“ segir Guðmund­ur Ingi Guðbrands­son, fé­lags- og vinnu­markaðsráðherra, spurður hvort ríkisstjórnin hafi rætt stöðuna sem nú er komin upp í kjaradeilum eftir að VR sleit viðræðum við Samtök atvinnulífsins (SA).

Viðræður í höndum samningsaðila

Kjaraviðræður | 25. nóvember 2022

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, fé­lags- og vinnu­markaðsráðherra.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, fé­lags- og vinnu­markaðsráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta var ekki á formlegri dagskrá en auðvitað ræðum við utan dagskrár líka. Þetta er stórt mál sem er í gangi núna,“ segir Guðmund­ur Ingi Guðbrands­son, fé­lags- og vinnu­markaðsráðherra, spurður hvort ríkisstjórnin hafi rætt stöðuna sem nú er komin upp í kjaradeilum eftir að VR sleit viðræðum við Samtök atvinnulífsins (SA).

„Þetta var ekki á formlegri dagskrá en auðvitað ræðum við utan dagskrár líka. Þetta er stórt mál sem er í gangi núna,“ segir Guðmund­ur Ingi Guðbrands­son, fé­lags- og vinnu­markaðsráðherra, spurður hvort ríkisstjórnin hafi rætt stöðuna sem nú er komin upp í kjaradeilum eftir að VR sleit viðræðum við Samtök atvinnulífsins (SA).

Mun ríkisstjórnin bregðast við með aðgerðum?

„Fyrst og fremst þá eru þessi atriði til viðræðna á milli samningsaðilanna en við fylgjumst mjög vel með,“ segir Guðmundur í samtali við mbl.is.

Vil­hjálm­ur Birg­is­son, formaður Starfs­greina­sam­bands­ins, tjáði mbl.is að sambandið hefur ekki slitið kjaraviðræðum við SA. Þá hefur Landssamband íslenskra verzlunarmanna ekki heldur slitið viðræðum. 

Næst verður fundað á þriðjudag með Ríkissáttasemjara og SA. 

Mikilvægur fundur í gær

Guðmundur segir að fundur forsætisráðherra með aðilum vinnumarkaðarins í gær hafi verið mjög mikilvægur. 

„Þetta er auðvitað í höndum samningsaðila eins og staðan er núna,“ segir Guðmundur Ingi. 

mbl.is