Ekki hægt að kaupa stælt læri

Heilsurækt | 14. apríl 2023

Ekki hægt að kaupa stælt læri

Cardi B vill vera liðug og með stælt læri. Hún ver þremur tímum í ræktinni dag hvern. Hún æfir í tvo tíma og teygir svo á öllum vöðvum í klukkutíma til viðbótar.

Ekki hægt að kaupa stælt læri

Heilsurækt | 14. apríl 2023

Cardi B vill halda sér í formi.
Cardi B vill halda sér í formi. Skjáskot/Instagram

Cardi B vill vera liðug og með stælt læri. Hún ver þremur tímum í ræktinni dag hvern. Hún æfir í tvo tíma og teygir svo á öllum vöðvum í klukkutíma til viðbótar.

Cardi B vill vera liðug og með stælt læri. Hún ver þremur tímum í ræktinni dag hvern. Hún æfir í tvo tíma og teygir svo á öllum vöðvum í klukkutíma til viðbótar.

„Ég hef verið að stunda líkamsrækt í tvo tíma á dag og teygi mig svo í klukkutíma,“ segir stjarnan í myndbandi á Tiktok.

„Ég vil vera jafn liðug og ég var áður en ég eignaðist son minn. En mitt raunverulega markmið er að verða jafnliðug og ég var þegar ég vann sem fatafella.“

„Margir skilja ekki afhverju maður er að leggja þetta allt á sig þegar maður gæti bara farið í fitusog en sannleikurinn er sá að maður getur verið með fitu í kringum líffærin sem ekki er hægt að sjúga í burtu. Maður verður að hreyfa sig til þess að ná henni í burtu.“

„Svo vil ég vera með stælt læri og maður getur ekki keypt sér þau.“

View this post on Instagram

A post shared by Cardi B (@iamcardib)



mbl.is