Félagsmenn Starfsmannafélags Garðabæjar samþykktu frekari verkfallsaðgerðir í atkvæðagreiðslu sem lauk klukkan 11 á laugardag.

Í tilkynningu á vef BSRB kemur fram að verkfallsboðunin var samþykkt með 89% greiddra atkvæða. Aðgerðirnar ná til starfsfólks leikskóla, sundlauga og bæjarskrifstofu.
Verkfallsaðgerðir hafa þar með verið samþykktar í 29 sveitarfélögum og eru það eftirfarandi: Akranes, Akureyri, Árborg, Bláskógarbyggð, Borgarbyggð, Dalvíkurbyggð, Fjallabyggð, Grindavík, Grímsnes- og Grafningshreppur, Grundafjarðarbær, Hafnarfjörður, Hveragerði, Ísafjarðarbær, Kópavogur, Mosfellsbær, Mýrdalshreppur, Norðurþing, Rangárþing eystra, Rangárþing ytra, Reykjanesbær, Seltjarnarnes, Skagafjörður, Snæfellsbær, Stykkishólmur, Suðurnesjabær, Vestmanneyjar, Vogar og Ölfus.
Mismunandi verður þó hvenær ákveðnir hópar innan sveitarfélaga munu leggja niður störf. Hér má sjá hvenær hverjir fara í verkfall.