TikTok-stjarna heillaðist af íslenskum baðlaugum

Á ferðalagi | 27. október 2023

Em Sheldon, ferðabloggari og áhrifavaldur, er vinsæl á samfélagsmiðlinum TikTok og birtir reglulega myndskeið frá ferðalögum sínum. Nýverið lagði hún leið sína til Íslands og heillaðist af baðlaugum landsins. Sheldon heimsótti bæði Sky lagoon á höfuðborgarsvæðinu og Skógarböðin í Vaðlaheiði og sagðist mest hissa að hafa bara heyrt minnst á Bláa lónið. 

Em Sheldon með öflugan fylgjendahóp á TikTok og Instagram.
Em Sheldon með öflugan fylgjendahóp á TikTok og Instagram. Samsett mynd

Em Sheldon, ferðabloggari og áhrifavaldur, er vinsæl á samfélagsmiðlinum TikTok og birtir reglulega myndskeið frá ferðalögum sínum. Nýverið lagði hún leið sína til Íslands og heillaðist af baðlaugum landsins. Sheldon heimsótti bæði Sky lagoon á höfuðborgarsvæðinu og Skógarböðin í Vaðlaheiði og sagðist mest hissa að hafa bara heyrt minnst á Bláa lónið. 

Em Sheldon, ferðabloggari og áhrifavaldur, er vinsæl á samfélagsmiðlinum TikTok og birtir reglulega myndskeið frá ferðalögum sínum. Nýverið lagði hún leið sína til Íslands og heillaðist af baðlaugum landsins. Sheldon heimsótti bæði Sky lagoon á höfuðborgarsvæðinu og Skógarböðin í Vaðlaheiði og sagðist mest hissa að hafa bara heyrt minnst á Bláa lónið. 

„Allir halda til Íslands og tala um Bláa lónið en ég hef aldrei heyrt neinn minnast á þessa heilsulind,“ sagði hún í myndskeiði sem sýnir frá heimsókn Sheldon í Skógarböðin. „Þú ert falin í óspilltu umhverfi,“ sagði hún um baðlaugina norðan heiða. 

Sheldon var jafn uppnumin yfir komu sinni í Sky lagoon og sagði baðlaugina eiga heima á laupalista (e. bucket list) allra ævintýramanna. 

Fylgjendur Sheldon eru rúmlega 120.000 talsins og voru margir þeirra sem skrifuðu í athugasemdir búnir að heimsækja baðlaugarnar og voru allir á sama máli og hún. 

View this post on Instagram

A post shared by Em Sheldon (@emshelx)

mbl.is