Anna prinsessa fyrirmynd Fendi

Kóngafólk í fjölmiðlum | 18. janúar 2024

Anna prinsessa fyrirmynd Fendi

Hönnuðurinn Silvia Venturini Fendi segir í viðtali við Times að Anna prinsessa sé með smekklegri konum í heiminum í dag. Hún nái að halda í kvenleika sinn á sama tíma og hún klæðist einkennisbúningi. Fendi hannaði nýjustu karlalínu Fendi með Önnu prinsessu í huga. 

Anna prinsessa fyrirmynd Fendi

Kóngafólk í fjölmiðlum | 18. janúar 2024

Anna prinsessa þykir skemmtilega ólík öðrum prinsessum þegar kemur að …
Anna prinsessa þykir skemmtilega ólík öðrum prinsessum þegar kemur að fatavali. Skjáskot/Instagram

Hönnuðurinn Silvia Venturini Fendi segir í viðtali við Times að Anna prinsessa sé með smekklegri konum í heiminum í dag. Hún nái að halda í kvenleika sinn á sama tíma og hún klæðist einkennisbúningi. Fendi hannaði nýjustu karlalínu Fendi með Önnu prinsessu í huga. 

Hönnuðurinn Silvia Venturini Fendi segir í viðtali við Times að Anna prinsessa sé með smekklegri konum í heiminum í dag. Hún nái að halda í kvenleika sinn á sama tíma og hún klæðist einkennisbúningi. Fendi hannaði nýjustu karlalínu Fendi með Önnu prinsessu í huga. 

„Ég varð ástfangin af stílnum hennar. Hún er sú allra fágaðasta í heiminum í dag. Þegar ég sá hana klæðast einkennisbúningi við krýninguna þá fannst mér hún afar falleg. Þá datt mér í hug að skapa þessa herralínu,“ segir Fendi.

„Líf hennar er utan sviðsljóssins. Hún er eins konar andhetja í tískunni. Það er eitthvað sem er mjög nútímalegt og flott. Þessi fatalína snýr að því að skapa flíkur sem endast og verður ekki hent. Eitthvað sem er mjög í anda Önnu.“

Anna prinsessa er oft í sömu fötunum þegar hún kemur fram og neitar að fá föt gefins. 

„Manni verður hugsað til þess hversu mikið af fötum enda á ruslahaugum. Við þurfum efni sem geta enst lengur en eina árstíð,“ segir Anna.

Anna prinsessa er þekkt fyrir lítið umstang hvað föt varðar. Hún gefur höllinni aldrei upplýsingar um hvaðan fötin koma. Hún sér engan tilgang í því enda oftast áratugagamlar flíkur. 

„Ég olli miklum vonbrigðum sem ung prinsessa. Það er svo ópraktískt að lifa lífinu í hvítum síðkjól og með kórónu á höfði,“ sagði Anna prinsessa eitt sinn.

Silvia Venturini Fendi er mjög hrifin af stíl Önnu prinsessu.
Silvia Venturini Fendi er mjög hrifin af stíl Önnu prinsessu. Skjáskot/Instagram
Karla tíska Fendi er sögð innblásin af Önnu prinsessu.
Karla tíska Fendi er sögð innblásin af Önnu prinsessu. AFP
Þægileg og endingargóð föt eru málið hjá Önnu prinsessu.
Þægileg og endingargóð föt eru málið hjá Önnu prinsessu. Skjáskot/Instagram
Köflóttir jakkar voru áberandi.
Köflóttir jakkar voru áberandi. AFP
Anna klæðist mikið köflóttu.
Anna klæðist mikið köflóttu. Skjáskot/Instagram
Anna prinsessa gæti vel klæðst þessu.
Anna prinsessa gæti vel klæðst þessu. AFP
Anna prinsessa hefur oft sagt í gríni að hún velji …
Anna prinsessa hefur oft sagt í gríni að hún velji að klæðast einkennisbúningum til þess að auðvelda sér lífið. Þá þarf hún ekki að hugsa út í hvaða kjól hún eigi að klæðast. AFP
Þessi klæðnaður hentar vel breska sveitarlífinu.
Þessi klæðnaður hentar vel breska sveitarlífinu. AFP
mbl.is