Vilji frekar valda samfélagstjóni en að hlusta á láglaunafólk

Kjaraviðræður | 12. mars 2024

Vilji frekar valda samfélagstjóni en að hlusta á láglaunafólk

Samninganefnd VR hefur beint því til stjórnar vinnudeilusjóðs VR að útfæra greiðslur til þeirra einstaklinga sem verkbann Samtaka atvinnulífsins nái til, verði af því. 

Vilji frekar valda samfélagstjóni en að hlusta á láglaunafólk

Kjaraviðræður | 12. mars 2024

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri …
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA. Samsett mynd/Kristinn Magnússon

Samninganefnd VR hefur beint því til stjórnar vinnudeilusjóðs VR að útfæra greiðslur til þeirra einstaklinga sem verkbann Samtaka atvinnulífsins nái til, verði af því. 

Samninganefnd VR hefur beint því til stjórnar vinnudeilusjóðs VR að útfæra greiðslur til þeirra einstaklinga sem verkbann Samtaka atvinnulífsins nái til, verði af því. 

Í yfirlýsingu fordæmir samninganefnd VR ákvörðun Samtaka atvinnulífsins um að hefja atkvæðagreiðslu um verkbann gagnvart skrifstofufólki innan VR. 

SA tilkynnti um áform sín í morgun í kjölfar þess að VR hóf atkvæðagreiðslu um boðun verk­fallsaðgerða fyr­ir farþega- og hleðsluþjón­ustu Icelanda­ir á Kefla­vík­ur­flug­velli. 

Kveðst samninganefnd VR skora á SA að skipta um kúrs og vinna heldur með VR að lausnum á þeim fáu atriðum sem út af standa. 

Stöðugleiki aldrei reistur á herðum láglaunafólks

„Atkvæðagreiðsla um verkbann eru ofsafengin viðbrögð við sjálfsögðum kröfum fámenns hóps sem starfar eftir lágmarkstöxtum við farþegaþjónustu Icelandair á Keflavíkurflugvelli,“ segir í yfirlýsingu samninganefndarinnar um málið.

Segir einnig að með verkbanninu sé verið að reyna að kúga VR og starfsfólk Icelandair í farþega- og hleðsluþjónustu á Keflavíkurflugvelli til hlýðni í nafni stöðugleika.

„Svar samninganefndar VR er að stöðugleiki verður aldrei reistur á herðum fólks sem starfar á lágmarkskjörum,“ segir í yfirlýsingunni. 

Gert að starfa á stubbavöktum

Þá er einnig tekið fram að framlínustarfsfólk í farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair á Keflavíkurflugvelli hafi um nokkra hríð reynt að knýja fram breytingar á sínum kjörum og vinnufyrirkomulagi, en um helmingur starfsfólks njóti ekki sjálfsagðs réttar til samfellds vinnutíma yfir vetrarmánuðina. 

Þá sé þeim gert að starfa á svokölluðum stubbavöktum og mæta þá milli 5 og 9 að morgni og mæta svo aftur til vinnu á milli 13 og 17.

Gríðarlegt fjárhagstjón fyrir samfélagið

Í yfirlýsingunni tekur samninganefnd fram að uppbyggilegar samræður hafi átt sér stað í gær þar sem VR hafi hlýtt á og brugðist við sjónarmiðum SA. Í stað þess að bregðast við tillögum VR hafi SA þó ákveðið að beina þreki sínu í að efna til atkvæðagreiðslu um verkbann gagnvart öllu skrifstofufólki í röðum VR.

Varar VR við því að verkbannsaðgerðir geti sett fjölda fyrirtækja á hliðina með alvarlegum afleiðingum fyrir launafólk og fyrirtæki.

„Samtök atvinnulífsins eru, með öðrum orðum, tilbúin til að kalla gríðarlegt fjárhagstjón yfir samfélagið allt, fremur en að bregðast við hófstilltum kröfum fámenns láglaunahóps á Keflavíkurflugvelli.“

mbl.is