Innsigluðu ástina með eins húðflúrum

Poppkúltúr | 13. mars 2024

Innsigluðu ástina með eins húðflúrum

Kristín Sif Björgvinsdóttir, útvarpskona á K100 og íþróttakona, og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson, innsigluðu ást sína með eins húðflúrum á dögunum. Húðflúrið er táknrænt fyrir hjónin og fjölskyldu þeirra. Það er hjartalaga, en myndin sýnir ref, ljón og loppuför. 

Innsigluðu ástina með eins húðflúrum

Poppkúltúr | 13. mars 2024

Ástin skín skært úr augum hjónanna.
Ástin skín skært úr augum hjónanna. Samsett mynd

Kristín Sif Björgvinsdóttir, útvarpskona á K100 og íþróttakona, og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson, innsigluðu ást sína með eins húðflúrum á dögunum. Húðflúrið er táknrænt fyrir hjónin og fjölskyldu þeirra. Það er hjartalaga, en myndin sýnir ref, ljón og loppuför. 

Kristín Sif Björgvinsdóttir, útvarpskona á K100 og íþróttakona, og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson, innsigluðu ást sína með eins húðflúrum á dögunum. Húðflúrið er táknrænt fyrir hjónin og fjölskyldu þeirra. Það er hjartalaga, en myndin sýnir ref, ljón og loppuför. 

Hjónin deildu fallegri speglamynd af sér á Instagram þegar verkinu var lokið, en Kristín Sif og Stefán, jafnan kallaður Stebbi Jak, fóru á húðflúrstofuna Reykjavík Ink á Frakkastíg. 

„Ég er refurinn þinn - þú ljónið mitt, þú ert minn mánudagur, hversdagurinn. Loppuförin tákna dýrmætu börnin okkar. Takk Reykjavík Ink fyrir fallegu flúrin okkar,“ skrifaði Kristín Sif við myndina.

Krist­ín Sif og Stefán gengu í það heil­aga í sept­em­ber á síðasta ári við glæsi­lega at­höfn, en sú fór fram ut­an­dyra í Hús­nestá sem er lít­il „eyja“ við Mý­vatn. Landið er í eigu fjöl­skyldu Stef­áns.

mbl.is