Áfrýjunardómstóll í Atlanta í Bandaríkjunum hafnaði í morgun kröfu foreldra Terri Schiavo um að Schiavo fái á ný næringu í æð. Schiavo er mjög heilasködduð og slanga, sem hefur séð henni fyrir næringu í æð, var tekin úr sambandi sl. föstudag að ósk eiginmanns Schiavo eftir að dómari hafði heimilað það. Foreldrarnir segjast ætla að áfrýja málinu áfram.
Tveir dómarar af þremur, sem sitja í dómstólnum í Atlanta, höfnuðu kröfu foreldranna. Í gær hafnaði alríkisdómari í Flórída kröfunni einnig en málið kom til kasta hans eftir að Bandaríkjaþing samþykkti í miklum flýti á sunnudag lagafrumvarp sem gerði foreldrum Schiavo kleift að halda málinu áfram.
Lögmaður Bobs og Mary Schindler, foreldra Schiavo, sagði að málinu yrði áfrýjað til æðra dómstigs en foreldrarnir væru staðráðin í að bjarga lífi dóttur sinnar. Þau sögðu í gær, að mjög hefði dregið af Terri og hún kynni að deyja þá og þegar.
Næringarslangan var tekin úr sambandi á föstudag og sögðu læknar þá að Schiavo, sem er 41 árs, gæti lifað í 1-2 vikur án þess að fá næringu.