Ban Ki-moon fordæmir aftökurnar

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, bættist í morgun í hóp …
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, bættist í morgun í hóp þeirra sem fordæma aftökurnar í Sádi-Arabíu. AFP

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, bættist í morgun í hóp þeirra sem fordæma aftökur 47 fanga, þeirra á meðal sjítaklerksins Nimr al-Nimrs í Sádi-Arabíu í gærmorgun. 

Nimr var einn af for­sprökk­um mót­mæla gegn rík­is­stjórn Sádi-Ar­ab­íu árið 2011 og var hand­tek­inn í kjöl­farið. Nimr gagn­rýndi meðferð stjórn­valda á sjíta-mús­lím­um, en land­inu er stjórnað af súnní-mús­lím­um.

Talsmaður Ban segir hann „dapran“ vegna atburðanna og að hann harmi þau ofbeldisfullu viðbrögð sem þeir hafa vakið og vísaði hann þar til þess þegar eldur var borinn að sendiráði Sádi-Arabíu í gærkvöldi. Ban hafði tekið mál Nimrs ítrekað upp við yfirvöld í Sádi-Arabíu.

„Al-Nimr og aðrir þeir sem teknir voru af lífi voru sakfelldir í kjölfar réttarhalda sem vekja ýmsar spurningar um eðli sakargiftanna og réttlæti dómskerfisins,“ segir talsmaður Ban.

Frétt mbl.is: Hóta „guðlegri hefnd“

Aftökunum var víða mótmælt í gær.
Aftökunum var víða mótmælt í gær. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert