Viðræður standa nú yfir milli eigenda The Weinstein Company og fjárfestingarfyrirtækisins Colony Capital um kaup þess síðarnefnda á stórum hluta eigna The Weinstein Company.
Kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein, einn af stofnendum fyrirtækisins, var rekinn frá fyrirtækinu í síðustu viku. Weinstein hefur verið sakaður um kynferðislega áreitni gagnvart konum á vinnustað sínum í tæplega þrjá áratugi.
Í frétt BBC um málið kemur fram að Colony Capital hefur nú þegar samþykkt að setja mikla fjármuni í rekstur The Weinstein Company.
„Við trúum að með fjárfestingu og stuðningi Colony Capital muni stöðugleiki fyrirtækisins aukast, auk þess sem dreifingaraðilar okkar og framleiðendur um heim allan geti þá haldið ró sinni,“ segir Tarak Ben Ammar, stjórnarmeðlimur í The Weinstein Company.
Stofnandi og stjórnarformaður Colony Capital, Thomas J. Barrack Jr. segir það vera mikinn heiður fyrir fyrirtækið að fjárfesta í the Weinstein Company og að hjálpa því að komast aftur á réttan kjöl.
„Við trúum því að fyrirtækið eigi raunverulegan möguleika á að vaxa og dafna og við hlökkum til að vinna með dreifingar- og framleiðsluaðilum þess. Við munum hjálpa fyrirtækinu að komast aftur í þá táknrænu stöðu sem það hafði í kvikmynda- og sjónvarpsbransanum,“ segir Barrack.