Maðurinn er fundinn

Mukhammadzoir Kadirov.
Mukhammadzoir Kadirov. AFP

Maðurinn frá Úsbekistan sem bandaríska alríkislögreglan, FBI, leitaði að fyrr í kvöld í tengslum við árásina í New York í gær er fundinn.

Innan við klukkustund leið frá því að lögreglan birti mynd af manninum þar til hann fannst.

Maðurinn heitir Mukhammadzoir Kadirov og er 32 ára.

„Við erum ekki lengur að leita að manninum,“ sagði William Sweeney, aðstoðarstjórnandi hjá FBI.

„Við höfum fundið hann og skulum láta þar við sitja.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert