Breska lögreglan er með tvær ásakanir um kynferðislega áreitni af hendi bandaríska leikarans Kevin Spacey til rannsóknar. Lögreglan greindi frá því í dag að nýjar ásakanir hefðu borist en áður hafði rannsókn hafist vegna annars máls fyrr í mánuðinum.
Spacey er sakaður um að hafa beitt karlmann kynferðislegu áreitni árið 2005 en í grein breskra miðla er maðurinn nefndur „Fórnarlamb 2.“
Fyrri ásakanir gegn Spacey frá Bretlandseyjum fjalla um áreitni af hans hálfu frá árinu 2008 en það mál er nú til rannsóknar. Scotland Yard staðfestir að starfsmenn innan deildar sem snúi að misnotkun á börnum rannsaki málið.
Í síðustu viku greindu forsvarsmenn Old Vic-leikhússins í London frá því að þeir hafi fengið 20 vitnisburði frá starfsfólki sem sakar Spacey um óviðeigandi hegðun. Spacey var listrænn stjórnandi leikhússins í 11 ár, eða frá árinu 2003 til 2014.
Yfirlýsing leikhússins kom í kjölfar ásakana á hendur Spacey sem er sakaður um kynferðislega áreitni og að hann hafi hagað sér eins og rándýr. Spacey hefur ekki tjáð sig um ásakanirnar.