Yfirvöld í Kaliforníu hafa á ný fyrirskipað fólki í Sanda Barbara sýslu að yfirgefa heimili sín vegna mikilla skógarelda. Að sögn veðurfræðinga er hvöss norðanátt sem nú er ríkir líkleg auka kraft eldloganna og að senda eldana í átt að strönd Kyrrahafsins.
Skógareldarnir eru nú orðnir þeir þriðju stærstu sem upp hafa komið í ríkinu og hafa nú um 1.000 ferkílómetrar þegar orðið eldunum að bráð, en þeir hafa logað frá 4. desember að því er BBC greinir frá.
Eldarnir hafa þegar kostað tvo lífið og er annar þeirra slökkviliðsmaður sem lést í gær, við störf sín þar sem hann barðist við eldana. Einnig lést 70 ára kona sem fannst látinn í bíl sínum. Þá hafa nokkrir slökkviliðsmenn slasast í baráttunni við eldana.
Þegar er búið að fyrirskipa brottflutning íbúa í Montecito og Summerland.
Hvassviðri og miklir þurrkar hafa gert slökkviliðsmönnum nánast ómögulegt að ná tökum á eldunum.
1.000 byggingar, þar á meðal 750 heimili, hafa eyðilagst í eldunum, sem eru þeir þriðju mestu í sögu ríkisins. Kostnaður við slökkviliðsaðgerðirnar nemur nú þegar, að sögn Reuters fréttastofunnar, 104 milljónum dollara.
Rúmlega 8.000 slökkviliðsmenn hafa barist við eldanna en mikill halli og grýtt landsvæði hefur gert þeim slökkvistarfið erfiðar um vik. Talsmaður slökkviliðsmanna á svæðinu sagði menn ekki senda af stað í þær hættulegu aðstæður sem væru fyrir hendi, heldur væri beðið eftir því að eldurinn næði öruggari stað svo hægt væri að ráða niðurlögum hans.