Nikolas Cruz hefur viðurkennt að hafa farið í gamla skólann sinn í Flórída í gær og skotið þar á fólk. 17 létust í árásinni og 14 særðust en Cruz var leiddur fyrir dómara fyrr í dag.
Cruz er ákærður fyrir 17 morð af yfirlögðu ráði við Marjory Stoneman Douglas-framhaldsskólann í Parkland í gær.
Cruz sagði lögregluþjónum að hann hefði byrjað að skjóta á nemendur sem hann sá á göngum skólans og á skólalóðinni.
Þegar nemendur hófu að flýja eftir að Cruz hóf skothríð ákvað hann að losa sig við AR-15 riffilinn sinn og vest sem hann klæddist til að hann gæti blandað sér í hópinn.
Lögfræðingur Cruz sagði að skjólstæðingur hennar væri leiður og fullur iðrunar. Melisa McNeill sagði fréttafólki að Cruz væri „brotin manneskja.“